Jæja!
Ætli kallinn ætli ekki að fara að reyna að blogga þar sem alltaf er verið að spyrja mann um fréttir.
Það er nú ekki svo sem neitt merkilegt en á meðan ég hitna aðeins í þessari fyrstu færslu get ég sagt frá því að við hjónin keyptum reiðhjól í gær handa henni auðvitað en það þarf svo sem ekkert að taka það fram. Til þess að hjólið beri nú þriggja stafa töluna mig líka var nú keypt eitthvað sem að er nógu sterkt til og varð Mustang “Dagmar” fyrir valinu en við höfum ákveðið að kalla það Mustang Dæju”. Þar sem að það var nú súld í morgun og útlitið fyrir að ég yrði búinn snemma í “Activering” sem er atvinnubóta vinna fyrir þá sem eru tímabundið atvinnulausir þar sem við tökum til og vinnum garðvinnu fyrir ellilífeyrisþega og vinnum ekki í rigningu. Ég var búinn klukkan hehe 8.06 í vinnuni sem er nýtt met hjá mér og verður örugglega seint slegið, nema hvað þetta er nú Danmörk!.
Fyrsta ferðin á Dæju tók eina beygju ætlaði svo af gangstéttinni út á götu framdekkið ofan í sand…helv.. og flaug á hausinn..djöf….. en sem betur fer er kallinn nú gamalreyndur í þessu og veit hvernig á redda sér úr þessu á háannatíma dagsins og ekki fer ég að láta danina sjá að ég sé eitthvað lélegur að hjóla tók bara gamla blak tigerinn á götuna og tíu armréttur til að redda þessu hmmmmmm þá leit þetta nú vel út fyrir almenninginn sem sá þessi ósköp “djók” I wish.
Annars er ég búinn að vera að sækja um vinnur hingað og þangað en fyrir menn eins og mig sem þótti ekki kúl að læra dönsku í skóla gengur það ekkert alltof vel en örvænti samt ekki strax því það er fullt af fólki að leita sér að vinnu eins og ég.
Gott í bili
kveðja Helgi.

en málið er að ég er nefnilega með svo lélega fingrasetningu á lyklaborðinu sem gerir þetta svo erfitt púff púff
.
.
en svo þegar í vinnuna er komið segja þeir jæja það er rigning vinnum ekkert í dag!
. Hann sagði mér einn góðann hann bjó í Manchester í smá tíma United maður en ég gat nú séð það á útlitinu einu og sér þar var hann staddur á bullubar orðinn vel fullur eins við er að búast þá ætlaði einhver að fara að berja hann því hann hélt að hann væri þjóðverji gat nú hrognað uppúr sér að hann væri frá Denmark what!! segði tjallinn Denmark aaaaaahhhhh PORNO!!!!!!!! þessi góði englendingur er mjög sennilega á þingi þar í dag því eins og menn muna voru þeir ansi margir teknir í bólinu með annað hvort viðhaldinu eða í BDSM klúbbum í soho hverfinu og bera svo nöfn eins og Brown og Darling lýsandi dæmi um þessa tesötrandi snobbhana sem halda að heimsveldið sé enn til.
killjoker
gummigisla
krummi80
thoka
torabeta