Allt þokkalegt!

Jæja!

Ætli kallinn ætli ekki að fara að reyna að blogga þar sem alltaf er verið að spyrja mann um fréttir.

 Það er nú ekki svo sem neitt merkilegt en á meðan ég hitna aðeins í þessari fyrstu færslu get ég sagt frá því að við hjónin keyptum reiðhjól í gær handa henni auðvitað en það þarf svo sem ekkert að taka það fram. Til þess að hjólið beri nú þriggja stafa töluna mig líka var nú keypt eitthvað sem að er nógu sterkt til og varð Mustang “Dagmar” fyrir valinu en við höfum ákveðið að kalla það Mustang Dæju”. Þar sem að það var nú súld í morgun og útlitið fyrir að ég yrði búinn snemma í “Activering” sem er atvinnubóta vinna fyrir þá sem eru tímabundið atvinnulausir þar sem við tökum til og vinnum garðvinnu fyrir ellilífeyrisþega og vinnum ekki í rigningu.  Ég var búinn klukkan hehe 8.06 í vinnuni sem er nýtt met hjá mér og verður örugglega seint slegið, nema hvað þetta er nú Danmörk!.

Fyrsta ferðin á Dæju tók eina beygju ætlaði svo af gangstéttinni út á götu framdekkið ofan í sand…helv.. og flaug á hausinn..djöf….. en sem betur fer er kallinn nú gamalreyndur í þessu og veit hvernig á redda sér úr þessu á háannatíma dagsins og ekki fer ég að láta danina sjá að ég sé eitthvað lélegur að hjóla tók bara gamla blak tigerinn á götuna og tíu armréttur til að redda þessu hmmmmmm þá leit þetta nú vel út fyrir almenninginn sem sá þessi ósköp “djók” I wish.

Annars er ég búinn að vera að sækja um vinnur hingað og þangað en fyrir menn eins og mig sem þótti ekki kúl að læra dönsku í skóla gengur það ekkert alltof vel en örvænti samt ekki strax því það er fullt af fólki að leita sér að vinnu eins og ég.

Gott í bili

kveðja Helgi. 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

flott hjá þér að byrja að blokka

Katrín Sól (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 17:51

2 identicon

Ekki svo slæmt af fyrstu færslu Hlakka til að fylgjast með

Knús knús, Guðrún frænka

Guðrún (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 19:50

3 identicon

snilld! gaman ad lesa, vertu duglegur ad skrifa faerslur!:)

knus a lidid fra mer*

Gerdur:)

Gerdur (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 19:53

4 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Flott hjá þér að byrja að blogga. Nú get ég lesið tvöfalt frá ykkur þarna í Danaveldi. Skemmtileg færsla hjá þér Helgi minn og þú kyssir konuna frá mér

kveðja Þóra.

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 5.11.2008 kl. 23:48

5 identicon

auðvitað á að standa bloggar, hitt er bara fín áhersla

Katrín Sól (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 14:35

6 identicon

Hahah, hefði viljað sjá þig detta. Reyndi að sjá fyrir mér blakmúvið, en gat það hreinlega ekki! :p

Annars hljómar þessi vinna eins og eitthvað fyrir letingjann mig, hehe.

Birta (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband